Gregg Popovich, þjálfari San Antonio í NBA-deildinni í körfuknattleik, er kominn í veikindaleyfi og var af þeim sökum ekki á hliðarlínunni þegar liðið vann Minnesota Timberwolves 113:103 á laugardag.
ESPN greinir frá því að Popovich, sem er 75 ára gamall, hafi þurft að fást við óuppgefið heilsufarsvandamál fyrir leikinn á laugardag.
Ekki er reiknað með reynsluboltanum á hliðarlínunni í næsta leik San Antonio í deildinni á fimmtudag. Aðstoðarþjálfarinn Mitch Johnson hljóp í skarðið á laugardag og mun gera slíkt hið sama í næsta leik.
Að svo stöddu er ekki vitað hvenær Popovich snýr aftur á hliðarlínuna.