Körfuknattleikskonan Ásta Júlía Grímsdóttir leikmaður Vals verður frá keppni næstu tvo mánuðina vegna meiðsla. Ásta reif liðþófa í hné á dögunum og þarf á aðgerð að halda.
Hún staðfesti tíðindin við mbl.is fyrir æfingu landsliðsins í Ólafssal á Ásvöllum í kvöld. Ásta var í hópnum sem mætir Slóvakíu á fimmtudag og Rúmeníu á sunnudag í undankeppni EM, en báðir leikir fara fram í Ólafssal.
Ásta dró sig úr hópnum vegna meiðslanna, en var mætt á æfingu liðsins í kvöld, en hún tók ekki þátt í æfingunni.