Körfuboltamaðurinn Justin Roberts er genginn til liðs við Hött á Egilsstöðum.
Justin, sem er 26 ára gamall bakvörður, hefur meðal annars leikið sem atvinnumaður í Makedóníu og Sviss eftir að hann lauk námi við Georgia State-háskólann í Bandaríkjunum.
Hattarmenn sögðu upp samningi Bandaríkjamannsins Courvoisier McCauley í gær og er Roberts ætlað að fylla hans skarð hjá félaginu.
Höttur er í 8. sæti deildarinnar með sex stig eftir fyrstu sex umferðirnar.