Slóveninn Luka Doncic átti enn einn stórleikinn fyrir Dallas Mavericks þegar liðið mátti sætta sig við naumt tap fyrir Utah Jazz, 115:113, í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.
Doncic var stigahæstur í leiknum með 37 stig, sjö fráköst og níu stoðsendingar.
Hjá Utah var John Collins stigahæstur með 28 stig, níu fráköst og tvo stolna bolta.
Sigurinn var kærkominn fyrir Utah þar sem liðið hefur aðeins unnið þrjá af 11 leikjum sínum á tímabilinu til þessa.
Dallas hefur farið nokkuð rólega af stað og er með fimm sigra í 12 leikjum.