Tveimur leikjum frestað

Þórsarar fá KV í heimsókn á morgun en ekki í …
Þórsarar fá KV í heimsókn á morgun en ekki í kvöld eins og til stóð. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Tveimur leikjum sem áttu að fara fram í 1. deild karla í körfuknattleik í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs.

Um er að ræða leiki Þórs á Akureyri gegn KV og Sindra gegn Hamri.

Báðum leikjum hefur verið frestað um sólarhring og fara fram á morgun.

Nýir leiktímar leikjanna tveggja:

Þór Ak. - KV, laugardaginn 16. nóvember kl. 19.15

Sindri - Hamar, laugardaginn 16. nóvember kl. 17.00

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert