Landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason átti flottan leik með Bilbao í 95:79-tapi liðsins gegn Joventut Badalona í spænsku deildinni í dag.
Bilbao er í níunda sæti deildarinnar með sex stig eftir átta leiki og Joventut Badalona er með átta stig í níunda sæti.
Tryggvi var næststigahæstur í sínu liði en hann skoraði 14 stig á 24 mínútum en auk þess tók hann sjö fráköst.