Þór frá Akureyri hafði betur gegn nýliðum Aþenu, 82:68, á heimavelli þegar liðin mættust í 7. umferð úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik í kvöld.
Þór er í áttunda sæti deildarinnar með sex stig. Aþena er sæti neðar með fjögur stig.
Í leiknum í kvöld var jafnræði með liðunum stóran hluta leiksins en Þórsarar voru þó alltaf skrefinu á undan.
Í fjórða leikhluta tókst Þór að sigla fram úr og vann að lokum 14 stiga sigur.
Esther Fokke var stigahæst í leiknum með 22 stig og tíu fráköst fyrir Þór. Madison Sutton bætti við 18 stigum, 17 fráköstum og fimm stoðsendingum.
Hjá Aþenu var Elektra Mjöll Kubrzeniecka stigahæst með 15 stig.
Höllin Ak, Bónus deild kvenna, 20. nóvember 2024.
Gangur leiksins:: 0:8, 6:10, 12:12, 16:17, 20:21, 28:24, 34:29, 40:34, 45:39, 47:39, 53:42, 60:53, 64:60, 67:60, 76:63, 82:68.
Þór Ak.: Esther Marjolein Fokke 22/10 fráköst, Madison Anne Sutton 18/17 fráköst/5 stoðsendingar, Amandine Justine Toi 15, Emma Karólína Snæbjarnardóttir 12/5 fráköst, Eva Wium Elíasdóttir 10/5 stoðsendingar, Natalia Lalic 5.
Fráköst: 29 í vörn, 11 í sókn.
Aþena: Elektra Mjöll Kubrzeniecka 15, Dzana Crnac 11, Ajulu Obur Thatha 11/4 fráköst, Barbara Ola Zienieweska 9/5 fráköst/5 stoðsendingar, Lynn Aniquel Peters 7/8 fráköst, Jada Christine Smith 6, Ása Lind Wolfram 4, Gréta Björg Melsted 3, Jade Edwards 2.
Fráköst: 18 í vörn, 9 í sókn.
Dómarar: Jón Þór Eyþórsson, Aron Rúnarsson, Hjörleifur Ragnarsson.
Áhorfendur: 153