Slóvenski körfuboltamaðurinn Luka Doncic er meiddur og mun af þeim sökum missa af næstu leikjum liðs síns Dallas Mavericks í NBA-deildinni.
ESPN greinir frá því að Doncic hafi meiðst á úlnlið hægri handar. Staðan verður tekin á honum eftir eina viku og fengið úr því skorið hvort Slóveninn öflugi sé leikhæfur á ný.
Þar sem stutt er á milli leikja í NBA-deildinni má Doncic eiga von á því að missa af að minsnta kosti næstu fjórum leikjum Dallas vegna meiðslanna.