Björgvin til liðs við ÍR

Björgvin Hafþór hefur gengið til liðs við ÍR.
Björgvin Hafþór hefur gengið til liðs við ÍR. Ljósmynd/ÍR

Björgvin Hafþór Ríkharðsson hefur gengið liðs við körfuknattleikslið ÍR sem situr í 11. sæti í efstu deild karla.

Björgvin hefur leikið áður með ÍR en það gerði hann árin 2014 - 2016 við góðan orðstýr.

Björgvin lék fyrstu sjö leiki tímabilsins með Grindavík en hefur ákveðið að söðla um og skipta yfir til ÍR.

Fyrsti leikur Björgvins fyrir ÍR gæti orðið 29. nóvember þegar liðið mætir Íslandsmeisturum Vals.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert