Sigur Íslands á Ítalíu í gærkvöld í undankeppni Evrópumóts karla í körfuknattleik er annar tveggja bestu sigra íslenska landsliðsins frá upphafi.
Það er mat „Stattnördanna“ sem halda úti skemmtilegri tölfræðisíðu um körfubolta á Facebook.
Samkvæmt þeirra samantekt eru sigrarnir tveir gegn Ítalíu, í Reggio Emilia í gærkvöld og á Ásvöllum árið 2022, efstir á blaði.
Ítalía er í 14. sæti heimslista FIBA í dag og var í 10. sæti þegar Ísland vann sigurinn á Ásvöllum.
Næstir á eftir koma sigrar á Tékkum sem voru í 19. sæti og Finnum sem voru í 20. sæti en samantekt Stattnördanna má sjá hér: