Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson átti flottan leik fyrir San Pablo Burgos er liðið sigraði Tizona Burgos, 88:73, á útivelli í B-deild spænska körfuboltans í kvöld.
Jón Axel skoraði tólf stig, tók átta fráköst og gaf fjórar stoðsendingar á tæpum 32 mínútum.
San Pablo Burgos er í toppsæti deildarinnar með þrettán sigra og aðeins eitt tap eftir fjórtán umferðir.