Katarzyna Anna Trzeciak er komin aftur í Stjörnuna í úrvalsdeild kvenna í körfubolta eftir stutt stopp í Grindavík.
Katarzyna spilaði með Stjörnunni á síðasta tímabili þegar liðið komst alla leið í undanúrslit í úrslitakeppninni og bikarkeppninni.
Hún gekk til liðs við Grindavík fyrir tímabilið og var með 12 stig, 5 fráköst, 3 stoðsendingar og 2 stolna bolta að meðaltali í leik.
Stjarnan er í sjötta sæti deildarinnar með átt stig og Grindavík í áttunda sæti með sex stig.