Landsliðskonan frábær í stórsigri

Danielle Rodriguez var öflug fyrir Fribourg í kvöld.
Danielle Rodriguez var öflug fyrir Fribourg í kvöld. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Íslenska landsliðskonan í körfubolta Danielle Rodriguez fór á kostum í 112:44-stórsigri Fribourg gegn Pully í efstu deild í Sviss.

Danielle skoraði 17 stig, tók tvö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar á 21:50 mínútu í sigrinum.

Fribourg er á toppi deildarinnar með 28 stig eftir 13 leiki og á tvo leiki til góða á Nyon sem er með 26 stig í öðru sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert