Kemur heim til Grindvíkinga

Arnór Tristan Helgason skýtur á körfu Njarðvíkur í leik með …
Arnór Tristan Helgason skýtur á körfu Njarðvíkur í leik með Grindvíkingum síðasta vetur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Arnór Tristan Helgason, körfuboltamaðurinn efnilegi frá Grindavík, er á heimleið frá Spáni og mun leika með Grindavíkurliðinu það sem eftir er tímabilsins.

Arnór er 18 ára gamall og sló í gegn með Grindvíkingum á síðasta tímabili þegar hann bæði tróð með tilþrifum og skoraði glæsilegar þriggja stiga körfur.

Í vetur hefur hann leikið með ungmennaliði spænska félagsins CB 1939 Canarias frá La Laguna á Kanaríeyjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert