Martin Hermannsson lék vel fyrir Alba Berlín þegar liðið tapaði fyrir Oldenburg, 97:92, í þýsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld.
Alba Berlín siglir lygnan sjó í 14. sæti deildarinnar af 17 liðum þar sem liðið hefur unnið sjö leiki og tapað níu. Oldenburg er í 12. sæti.
Martin lék í 22 mínútur og nýtti mínúturnar vel þegar hann skoraði 12 stig og gaf sex stoðsendingar.