Keflavíkurkonur gerðu góða ferð á Sauðárkrók í kvöld þegar þær unnu þar öruggan sigur á Tindastóli í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik, 97:69.
Keflavík er þá komin með 22 stig í þriðja sæti deildarinnar en Tindastóll er áfram í fimmta sæti með 16 stig.
Tindastóll var yfir eftir fyrsta leikhluta, 22:19, en Keflavík var með nauma forystu í hálfleik, 43:40.
Í þriðja leikhluta stungu Keflvíkingar af og staðan var 72:55 að honum loknum. Sigur þeirra var ekki í minnstu hættu eftir það.
Jasmine Dickey skoraði 25 stig fyrir Keflavík og tók 17 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir skoraði 13 stig og Bríet Sif Hinriksdóttir 11.
Oumoul Sarr Coulibaly skoraði 20 stig fyrir Tindastól, Edyta Ewa Falenzcyk 13 og Randi Brown 12.
Gangur leiksins:: 7:2, 13:6, 17:15, 22:19, 26:30, 32:32, 32:34, 40:43, 42:53, 49:65, 51:68, 55:72, 57:80, 60:83, 63:92, 69:97.
Tindastóll: Oumoul Khairy Sarr Coulibaly 20/7 fráköst, Edyta Ewa Falenzcyk 13/5 fráköst, Randi Keonsha Brown 12/8 fráköst/6 stoðsendingar, Ilze Jakobsone 10/4 fráköst/6 stoðsendingar, Inga Sólveig Sigurðardóttir 4/4 fráköst, Rannveig Guðmundsdóttir 4, Paula Cánovas Rojas 4/4 fráköst, Brynja Líf Júlíusdóttir 2/10 fráköst.
Fráköst: 34 í vörn, 8 í sókn.
Keflavík: Jasmine Dickey 25/17 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir 13/5 fráköst/8 stoðsendingar, Bríet Sif Hinriksdóttir 11, Julia Bogumila Niemojewska 10/4 fráköst/5 stoðsendingar, Agnes María Svansdóttir 10, Sara Rún Hinriksdóttir 10/5 fráköst, Anna Ingunn Svansdóttir 9, Anna Lára Vignisdóttir 7, Ásdís Elva Jónsdóttir 2.
Fráköst: 29 í vörn, 6 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Eggert Þór Aðalsteinsson, Jón Svan Sverrisson.
Áhorfendur: 300.