Þór frá Akureyri hélt áfram sigurgöngu sinni í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik í kvöld með því að vinna öruggan sigur á Aþenu í Austurbergi í Reykjavík, 95:85.
Þór náði þar með Haukum að stigum á toppnum með 24 stig, eftir tíunda sigurleikinn í röð, en Haukar eiga til góða leik gegn Grindavík annað kvöld. Aþena situr áfram á botni deildarinnar með 6 stig, tveimur stigum á eftir Grindvíkingum.
Fyrsti leikhlutinn var jafn og Þór yfir, 26:23, að honum loknum. Síðan dró í sundur með liðunum og staðan í hálfleik var 58:41, Akureyringunum í hag.
Í þriðja leikhluta stungu Þórskonur af, staðan var 83:54 að honum loknum og lokakaflinn því nánast formsatriði fyrir þær. Aþena lagaði þó stöðuna verulega með góðum endaspretti og kom muninum niður í tíu stig þegar hálf mínúta var eftir af leiknum.
Amandine Toi skoraði 31 stig fyrir Þór, Madison Anne Sutton var með 20 stig og 17 fráköst og Emma Karólína Snæbjarnardóttir skoraði 15 stig.
Violet Morrow skoraði 27 stig fyrir Aþenu og Elektra Mjöll Kubrzeniecka 15.
Gangur leiksins:: 6:0, 10:7, 17:16, 23:24, 31:29, 34:41, 36:49, 41:58, 47:66, 47:71, 52:79, 54:83, 59:86, 66:90, 77:94, 85:95.
Aþena: Violet Morrow 27/9 fráköst, Elektra Mjöll Kubrzeniecka 15/4 fráköst, Barbara Ola Zienieweska 12/5 fráköst/6 stolnir, Teresa Sonia Da Silva 10, Tanja Ósk Brynjarsdóttir 9, Ása Lind Wolfram 6, Lynn Aniquel Peters 4, Hanna Þráinsdóttir 2/4 fráköst/5 varin skot.
Fráköst: 17 í vörn, 10 í sókn.
Þór Ak.: Amandine Justine Toi 31/4 fráköst, Madison Anne Sutton 20/17 fráköst/7 stoðsendingar, Emma Karólína Snæbjarnardóttir 15, Natalia Lalic 14/7 fráköst, Eva Wium Elíasdóttir 9, Hrefna Ottósdóttir 3, Esther Marjolein Fokke 3.
Fráköst: 29 í vörn, 6 í sókn.
Dómarar: Jakob Árni Ísleifsson, Ingi Björn Jónsson, Dominik Zielinski.
Áhorfendur: 40