Keflvíkingar styrkja sig

Nigel Pruitt í leik með Þór á síðustu leiktíð.
Nigel Pruitt í leik með Þór á síðustu leiktíð. Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við Nigel Pruitt og mun hann leika með liðinu út yfirstandandi tímabil.

Pruitt er Bandaríkjamaður með þýskt vegabréf. Hann þekkir körfuboltann á Íslandi ágætlega en hann lék með Þór frá Þorlákshöfn á síðustu leiktíð og skoraði 18 stig, tók sjö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar að meðaltali í leik.

Keflavík er í 7. sæti úrvalsdeildarinnar með 14 stig eftir 15 leiki en fimm af tólf liðum deildarinnar eru með sama stigafjölda.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert