Frestað vegna þakleka

Ekki er leikhæft í Ólafssal vegna leka.
Ekki er leikhæft í Ólafssal vegna leka. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Leik Hauka og Þórs frá Þorlákshöfn í úrvalsdeild karla, sem átti að hefjast klukkan 19 í Ólafssal að Ásvöllum í kvöld, hefur verið frestað.

Ástæðan er leki úr þaki niður á leikvöllinn í Ólafssal sem kemur til vegna þess slagviðris sem nú geisar hvarvetna um landið.

Leiknum hefur þegar verið fundinn nýr leiktími. Fer hann nú fram klukkan 17 á sunnudaginn 2. febrúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert