Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari kvennaliðs Aþenu í körfuknattleik, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann svarar yfirlýsingu ÍSÍ hvar ofbeldi hvers konar var fordæmt.
Brynjar Karl hefur verið sakaður um að beita leikmenn sína andlegu ofbeldi með þjálfunaraðferðum sínum. Fundu leikmenn Aþenu sig knúna til þess að gefa út sína eigin yfirlýsingu þar sem þær höfnuðu því að Brynjar Karl beitti þær ofbeldi.
„Ég er hissa að þetta útspil ÍSÍ hafi ekki komið fyrr. Enn og aftur um leið og kúltúrinn sem stelpur og konur í boltaíþróttum búa við er gagnrýndur birtist yfirlýsing frá ÍSÍ. Afstaða ÍSÍ virðist fyrst og fremst snúast um að vernda „yfirstétt“ – þá sem ættu þó að gæta hagsmuna og öryggis iðkenda. Þegar ÍSÍ talar um að stemma stigu við einelti, tryggja öryggi og tryggja valdastöðu á milli aðila á uppbyggilegan hátt, hríslast um mig ónotatilfinning, því reynsla mín er allt önnur.
Síðustu ár hefur ÍSÍ staðið fyrir grófri valdníðslu og oft sýnt algjört andvaraleysi gagnvart mikilvægustu hagsmunaaðilanum í hreyfingunni, sjálfum iðkendunum. Fólk er stimplað sem ofbeldisfullt án nokkurra sannanna. ÍSÍ rannsakar hvorki ásakanir né gefur fólki tækifæri til að hreinsa sig af sök. Yfirlýsingar um að ÍSÍ vilji mæta á æfingar eða ræða beint við fólk eru aldrei efndar – í staðinn tekur ÍSÍ þátt í níði,“ skrifar Brynjar Karl á Facebook-síðu sinni.
„Það sem fer mest fyrir brjóstið á mér er hvernig ÍSÍ og Lárus Blöndal bregðast foreldrum og iðkendum Aþenu, og reyna hvað eftir annað að rýra bæði heiður þeirra og baráttu. Þau sem ættu að vera vernduð undir væng ÍSÍ standa eftir ráðalaus og svikin. Þetta mun ég ekki láta átölulaust,“ bætti hann við og skrifaði nánar um Lárus:
„Ég óskaði eftir fundi með Lárusi 3. mars 2022 til að ræða öll þessi mál. Hann sýndi mér kurteisi í eigin persónu og baðst afsökunar, en lét það þó ekki koma fram opinberlega. Ef ÍSÍ neitar þessu, þarf að endurtaka þennan fund opinberlega.
Nú hefur ÍSÍ haldið áfram og boðið sjálfa sig fram sem einhvers konar „dómara“ í eigin eineltismáli gegn okkur. Það sem gerir þetta enn átakanlegra er að ÍSÍ birti yfirlýsingu um meinta ofbeldismenningu hjá okkur nánast um leið og Aþenu-konur gáfu út yfirlýsingu þess efnis að þær verði ekki fyrir ofbeldi. Sú vanvirðing er með ólíkindum.
Hafa ber í huga hversu mikinn skaða svona óábyrg umræða getur valdið. Ég er handviss um að fílabeinsturninn í Laugardalnum hefur ekki veitt því athygli hversu mikil uppbygging á sér stað í 111 Reykjavík. Hins vegar kemur þetta fram hjá ÍSÍ sem skortur á virðingu, skilningi og, að mínu mati, ábyrgð.
Það að Lárus og félagar taki svo aftur upp sömu gamlar sögusagnir og beiti einelti gegn okkur nú, jafnvel eftir að iðkendur Aþenu hafa tjáð sig skýrt, er óskiljanlegt. Á sama tíma situr ÍSÍ uppi í eigin óreiðu – sem væri vafalaust hægt að kafa dýpra í.
Ég mun áfram krefjast þess að ÍSÍ hætti að setja sig í dómarasæti í eigin eineltismáli, setjist við sama borð og iðkendur Aþenu og láti af þessu stanslausa níði. Endanlega þarf að hreinsa borðið: Taka á málinu af heilindum, biðjast afsökunar eða stíga til hliðar. Svo einfalt er það.“
Yfirlýsingu Brynjars Karls má lesa í heild sinni hér: