Pétur kveður: „Núna eigið þið pabbastrákana!“

Pétur Ingvarsson.
Pétur Ingvarsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Pétur Ingvarsson, sem lét af störfum sem þjálfari karlaliðs Keflavíkur í körfuknattleik í vikunni, hefur ritað kveðjubréf til Keflvíkinga þar sem hann þakkar fyrir sig.

Pétur tók við starfinu fyrir síðasta tímabil og gerði Keflavík þá að bikarmeisturum ásamt því að komast í undanúrslit úrslitakeppni Íslandsmótsins.

Á yfirstandandi tímabili hefur gengið ekki verið jafngott þar sem Keflavík er í níunda sæti með 14 stig eftir 16 leiki.

Bréf Péturs, sem körfuknattleiksdeild Keflavíkur birti á samfélagsmiðlum sínum í dag, er sem hér segir:

„Ég vil fá tækifæri til þess að þakka Kkd Keflavíkur fyrir að hafa gefið mér tækifæri til þess að þjálfa karlalið félagsins og verð ég alltaf þakklátur fyrir það. Allir stjórnarmenn og sjálfboðaliðar vinna gríðarlega óeigingjarnt starf fyrir Kkd Keflavíkur sem gera ykkur að einstökum klúbb.

Mér þykir gríðarlega vænt um leikmenn og þjálfara liðsins og þar er mikið af einstökum karakterum sem hafa alltaf stigið upp á úrslitastundum og munu 100% gera það áfram. Alltaf hafa menn verið tilbúnir til þess að fórna sér til þess að ná árangri fyrir Keflavík.

Stuðningsmenn Keflavíkur hafa alvöru ástríðu fyrir leiknum og liðinu sínu. Ég þori að fullyrða að ekkert félag á Íslandi á eins öfluga stuðningsmenn, ég mun sakna ykkar. Takk fyrir að taka vel á móti mér og fjölskyldu minni, núna eigið þið pabbastrákana!!!

Ást og virðing

Pétur Ingvarsson“

Synir Péturs, þeir Hilmar og Sigurður, eru báðir leikmenn Keflavíkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert