Njarðvík er bikarmeistari í annað sinn

Njarðvík er bikarmeistari.
Njarðvík er bikarmeistari. mbl.is/Ólafur Árdal

Njarðvík er bikar­meist­ari kvenna í körfu­bolta árið 2025 eft­ir sig­ur á Grinda­vík, 81:74, en leikið var í Smár­an­um í Kópa­vogi í dag.

Njarðvík er þar með bikar­meist­ari í annað sinn.

Fyrsti leik­hluti fór að mestu í að ná úr sér stressi og hrolli. Bæði lið hittu mjög illa af vítalín­unni og mátti sjá skot geiga sem al­mennt fara ofan í hjá báðu liðum.

Grinda­vík­ur­kon­ur náðu mestu for­skoti í fyrsta leik­hluta í stöðunni 11:4. Njarðvík­ur­kon­ur náðu þá flott­um kafla og jöfnuðu í stöðunni 13:13. Eft­ir það var jafnt á öll­um töl­um og komust Njarðvík­ur­kon­ur einu sinni yfir í fyrsta leik­hluta í stöðunni 16:15.

Grinda­vík­ur­kon­ur naðu aft­ur for­yst­unni en Njarðvík­ur­kon­ur jöfnuðu alltaf jafn­hraðar.

Staðan eft­ir fyrsta leik­hlut­ann var jöfn, 21:21.

Njarðvík­ur­kon­ur byrjuðu ann­an leik­hluta frá­bær­lega þegar Sara Björk Loga­dótt­ir setti þriggja stiga körfu. Grinda­vík setti tveggja stiga körfu í kjöl­farið en þá kom ann­ar þrist­ur frá Britt­any Dink­ins.

Njarðvík­ur­kon­ur byggðu upp mest 10 stiga for­skot í stöðunni 35:25 og 39:29 en þá settu Grinda­vík­ur­kon­ur í næsta gír og fóru að saxa niður for­skot Njarðvík­ur.

Grinda­vík­ur­kon­ur voru langt komn­ar með að vinna niður for­skot Njarðvík­ur þegar mun­ur­inn var aðeins 5 stig í stöðunni 39:34 með tveim­ur víta­skot­um frá Daisha Bra­dford en þá kom tveggja stiga karfa frá Paul­ina Hersler og svo víta­skot frá Britt­any Dink­ins.

Staðan í hálfleik 42:34 fyr­ir Njarðvík.

Njarðvíkurliðið fagnar.
Njarðvík­urliðið fagn­ar. mbl.is/Ó​laf­ur Árdal

Britt­any Dink­ins var með 17 stig og 4 stoðsend­ing­ar fyr­ir Njarðvik og Em­ilie Sofie Hesseldal var með 8 frá­köst í fyrri hálfleik.

Hulda Björk Ólafs­dótt­ir var með 10 stig og Isa­bella Ósk Sig­urðardótt­ir var með 4 frá­köst og Sofie Tryg­geds­son Preetzmann var með 3 stoðsend­ing­ar fyr­ir Grinda­vík í fyrri hálfleik.

Þriðji leik­hluti var held­ur bet­ur kafla­skipt­ur. Njarðvík­ur­kon­ur virt­ust ætla að fara landa nokkuð þægi­leg­um sigri og byggðu upp 15 stiga for­skot í stöðunni 53:38 fyr­ir Njarðvík.

Grinda­vík­ur­kon­ur voru al­deil­is ekki á þeim bux­un­um og komu með eitt rosa­leg­asta áhlaup sem und­ir­ritaður hef­ur séð. Tókst þeim að minnka mun­inn niður í eitt stig í stöðunni 59:58.

Þegar þriðja leik­hluta lauk var staðan 61:59 fyr­ir Njarðvík og svaka­leg­ur loka­leik­hluti framund­an.

Fjórði leik­hluti bauð upp á alla þá spennu og drama­tík sem hægt er að hugsa sér. Grinda­vík byrjaði á að jafna leik­inn í 61:61 en þá kom flott­ur kafli hjá Njarðvík­ur­kon­um sem juku mun­inn í 8 stig í stöðunni 69:61.

Grinda­vik­ur­kon­ur gáf­ust ekki upp og jöfnuðu í 73:73. Njarðvík­ur­kon­ur náðu aft­ur for­skoti og unnu að lok­um 81:74 sig­ur og eru bikar­meist­ar­ar.

Stuðningsmenn Njarðvíkur fagna.
Stuðnings­menn Njarðvík­ur fagna. mbl.is/Ó​laf­ur Árdal

Britt­any Dink­ins skoraði 31 stig og Em­ilie Sofie tók 20 frá­köst fyr­ir Njarðvík.

Daisha Bra­dford skoraði 21 stig og Mari­ana Dur­an tók 7 frá­köst fyr­ir Grinda­vík.

Til ham­ingju með bikar­meist­ara­titil­inn Njarðvík­ing­ar.

Gang­ur leiks­ins:: 4:9, 10:13, 16:17, 21:21, 27:23, 35:27, 39:30, 42:34, 48:38, 57:45, 57:54, 61:59, 67:61, 73:67, 75:73, 81:74.

Njarðvík: Britt­any Dink­ins 31/​10 frá­köst/​10 stoðsend­ing­ar, Paul­ina Hersler 25/​9 frá­köst, Em­ilie Sofie Hesseldal 14/​20 frá­köst, Lára Ösp Ásgeirs­dótt­ir 3, Sara Björk Loga­dótt­ir 3/​5 frá­köst, Hulda María Agn­ars­dótt­ir 3, Anna Lilja Ásgeirs­dótt­ir 2.

Frá­köst: 34 í vörn, 13 í sókn.

Grinda­vík: Daisha Bra­dford 21/​6 frá­köst/​5 stoðsend­ing­ar, Hulda Björk Ólafs­dótt­ir 19, Isa­bella Ósk Sig­urðardótt­ir 12/​6 frá­köst, Sofie Tryg­geds­son Preetzmann 10/​6 frá­köst/​7 stoðsend­ing­ar, Mari­ana Dur­an 8/​7 frá­köst, Ólöf Rún Óla­dótt­ir 3, Ena Viso 1/​5 frá­köst.

Frá­köst: 24 í vörn, 9 í sókn.

Dóm­ar­ar: Bjarki Þór Davíðsson, Jó­hann­es Páll Friðriks­son, Davíð Kristján Hreiðars­son.

Áhorf­end­ur: 1250.

Paulina Hersler í liði Njarðvíkur reynir að troða í leiknum.
Paul­ina Hersler í liði Njarðvík­ur reyn­ir að troða í leikn­um. mbl.is/Ó​laf­ur Árdal
Lýs­ing upp­fær­ist sjálf­krafa

All­ar lýs­ing­ar í beinni

Njarðvík 81:74 Grinda­vík opna loka
skorar Olga Sevcova (11. mín.)
skorar Ameera Hussen (44. mín.)
skorar Olga Sevcova (59. mín.)
Mörk
Spjöld
fær gult spjald Hildur Karítas Gunnarsdóttir (74. mín.)
mín.
90 Leik lokið
Sanngjörn úrslit á Hásteinsvelli í dag. Eyjakonur allsráðandi í leiknum og áttu feikna mörg færi. Þrisvar fór boltinn inn og 3:0 lokatölur.
90 Eyrún Vala Harðardóttir (Afturelding) á skot sem er varið
Skot inní teig úr þröngu færi, vel varið hjá Auði þarna.
88 ÍBV fær hornspyrnu
Eva ver frá Madison og ÍBV fær hornspyrnu. Olga tekur spyrnuna en hún fer út af. Vindurinn með eitthvað vesen.
88 Madison Wolfbauer (ÍBV) á skot sem er varið
Madison nær svo sannarlega að halda boltanum niðri. Eva í markinu gerir virkilega vel að verja þarna.
87
ÍBV að fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað rétt fyrir utan teig. Madison ætlar að taka spyrnuna. Eina sem hún þarf að gera er að halda boltanum niðri.
86 Embla Harðardóttir (ÍBV) kemur inn á
86 Viktorija Zaicikova (ÍBV) fer af velli
82 Sara Siguenza (Afturelding) kemur inn á
82 Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir (Afturelding) fer af velli
82 Veronica Boix (Afturelding) kemur inn á
82 Ísafold Þórhallsdóttir (Afturelding) fer af velli
82 Steinunn Erla Gunnarsdóttir (Afturelding) kemur inn á
82 Eva Ýr Helgadóttir (Afturelding) fer af velli
80 Afturelding fær hornspyrnu
ÍBV stangar þessa frá.
80 Kristín Erna Sigurlásdóttir (ÍBV) á skot sem er varið
Vel gert hjá Kristínu Ernu að ná skotinu þarna en Eva enn og aftur vel vakandi í markinu og nær að verja.
79 ÍBV fær hornspyrnu
78 Selma Björt Sig­ur­sveins­dótt­ir (ÍBV) kemur inn á
78 Júlíana Sveinsdóttir (ÍBV) fer af velli
78 Helena Jónsdóttir (ÍBV) kemur inn á
78 Sandra Voitane (ÍBV) fer af velli
78 ÍBV fær hornspyrnu
ÍBV með þrjú dauðafæri en ná bara ekki að pota honum inn enda margar rauðar treyjur í teignum. Madison með lokaskotið en Eva í markinu gerir virkilega vel og blakar honum yfir. Önnur hornspyrna.
77 Ameera Hussen (ÍBV) á skot framhjá
Ameera nær frákastinu af skoti Söndru en setur boltann langt framhjá.
77 Sandra Voitane (ÍBV) á skot sem er varið
Sandra með skot en er svo flögguð rangstæð.
76 ÍBV fær hornspyrnu
ÍBV fær hornspyrnu eftir flott uppspil hjá Ameera Hussen og Olga Sevcova. sandra Voitane tekur spyrnuna sem er ekkert sérstök.
74 Hildur Karítas Gunnarsdóttir (Afturelding) fær gult spjald
72 Afturelding fær hornspyrnu
71
Enn bætir í vind og svo bætir veðurguðinn um betur og bætir við rigningu líka, brr..
68 Auður Scheving (ÍBV) kemur inn á
68 Guðný Geirsdóttir (ÍBV) fer af velli
68 Thelma Sól Óðinsdóttir (ÍBV) kemur inn á
68 Þórhildur Ólafsdóttir (ÍBV) fer af velli
66
Afturelding aðeins að ná að nýta sér veðrið hérna síðustu mínúturnar og ná að ýta spilinu ofar á völlinn.
65 Eyrún Vala Harðardóttir (Afturelding) kemur inn á
65 Sigrún Eva Sigurðardóttir (Afturelding) fer af velli
59 MARK! Olga Sevcova (ÍBV) skorar
Ameera Hussen enn og aftur með stoðsendingu hérna. Olga Sevcova gerir glæsilega og setur hann í fjærhornið.
58 Katrín Rut Kvaran (Afturelding) á skot framhjá
Katrín Rut með svakalegt skot að marki ÍBV en Haley Thomas vel staðsett og rétt nær að flikka boltanum yfir markið. ÍBV heppnar þarna.
57 Afturelding fær hornspyrnu
53 Katrín Rut Kvaran (Afturelding) kemur inn á
53 Birna Kristín Björnsdóttir (Afturelding) fer af velli
50 Ameera Hussen (ÍBV) á skot framhjá
Flott færi en skotið hjá Ameera Hussen langt yfir.
49
Olga með flott einstaklingsframtak hérna, leikur upp allan völlinn og nær sendingunni inn í teig. Þar fer boltinn af varnarmanni og virðist vera að fara inn en á einhvern ótrúlegan hátt nær Eva Ýr að slá boltann út og Afturelding sleppa með skrekkinn!
46 Seinni hálfleikur hafinn
Nú er það Afturelding sem byrjar.
45 Hálfleikur
Jæja fyrri hálfleik lokið og ÍBV leiða hér með tveimur mörkum. Staðan sanngjörn miðað við spilamennsku liðanna í hálfleiknum. Lítur út fyrir að bæta sé í vindinn hérna á Eyjunni fögru.
45 Afturelding fær hornspyrnu
44 MARK! Ameera Hussen (ÍBV) skorar
MARK! 2:0. Klafs í teig Aftureldingar og Ameera nær að pota honum inn.
42 Kristín Þóra Birgisdóttir (Afturelding) á skalla sem fer framhjá
Glæsileg sending hjá Hildi Karítas inn í teig ÍBV þar sem að Kristín Þóra nær skallanum en skallinn framhjá. Þetta var fínasta færi hjá Aftureldingu sem þær hefði átt að nýta betur.
41
Hildur Karítas liggur eftir að hafa lent illa. Hún heldur aftan um hálsinn. Aftureldingfær aukaspyrnu sem að Hildur Karítas tekur sjálf.
38
Olga með sendingu inn í teiginn en þar er enginn hvít treyja sem nær til boltans og boltinn rúllar út af: markspyrna.
34 Ameera Hussen (ÍBV) á skot framhjá
Ameera með flott skot hérna sem enginn bjóst við. Snéri varnarmann Aftureldingar af sér og skaut. Boltinn rétt yfir þverslánna.
32
Sigrún Gunndís, hafsent og fyrirliði Aftureldingar, liggur og heldur um höfuðið eftir eitthvað klafs. Sá ekki alveg hvað gerðist en henni virðist vera illt.
31
Leikurinn hefur nú aðeins róast en ÍBV eru með öll völd á vellinum.
28 Ameera Hussen (ÍBV) á skot sem er varið
26 Þórhildur Ólafsdóttir (ÍBV) á skot sem er varið
Olga með sendingu á Þórhildi sem er alveg ein fyrir utan teig, nær að stilla sér upp og taka skotið. Eva tekur þetta auðveldlega í markinu.
23 ÍBV fær hornspyrnu
Sandra tekur, fínasta spyrna en Afturelding gerir vel og kemur þessu frá.
15 Viktorija Zaicikova (ÍBV) á skot sem er varið
14
Sóknarþungi Eyjakvenna mikill þessa stundina.
13 Haley Thomas (ÍBV) á skot framhjá
Flott spyrna hjá Júlíönu sem ratar á Haley Thomas inn í teignum en hún setur boltann rétt framhjá markinu!
12
Lið Aftureldingar ræður illa við hraða Olgu og eru að brjóta á henni núna í þriðja skiptið á 12 mínútum. Júlíanna kemur og tekur spyrnuna.
11 MARK! Olga Sevcova (ÍBV) skorar
MAARK! 1:0 fyrir ÍBV. Ameera með góða sendingu frá endalínu fyrir mark Aftureldingar. Olga Sevcova vel staðsett og getur ekki annað en klárað þetta.
9 Ameera Hussen (ÍBV) á skot sem er varið
Fyrsta skotið á markið komið. Fínasta tilraun hjá Ameera Hussen.
8
ÍBV með flott uppspil þar sem að Ameera setti boltann yfir vörn Aftureldingar og Olgu kom á harðaspretti upp kantinn. Í fyrstu var eins og sendingin væri of löng en Eva Ýr í marki Aftureldingar rann og rétt náði boltanum áður en að Olga náði að pota tánni í hann.
5
Leikurinn fer rólega af stað, greinilegt er að hvorugt lið er undir neinnu pressu að ná fram einhverjum úrslitum hér. Vonandi fáum við bara skemmtilegan fótbolta fyrir vikið.
1 Leikur hafinn
ÍBV byrjar með boltann og sækja í átt frá dalnum.
0
Liðin labba inná í síðasta skiptið þetta sumarið. Þetta fer að hefjast.
0
Mbl.is spáði ÍBV í sjöunda sæti fyrir tímablilið og Aftureldingu því níunda.
0
ÍBV gerir engar breytingar á sínu liði en Afturelding gerir þrjár breytingar á sínu liði: Veronica Boix, Sara Siguenza og Victoria Kaláberová detta úr liðinu fyrir þær Elenu Brynjarsdóttur, Birnu Kristínu og Guðrúnu Elísabetu
0
Lokaum­ferð Bestu deild­ar kvenna í fót­bolta verður spiluð í heild sinni þegar fimm leik­ir verða flautaðir á núna klukk­an 14 í dag. Valur eru nú þegar búnar að tryggja sér titilinn en spennandi verður að sjá hvaða lið nær öðru sætinu, Stjarnan eða Breiðablik.
0
ÍBV er í sjötta sæti með 26 stig og getur farið upp í það fimmta með sigri(og mögulega það fjórða ef úrslit úr leikjum dagsins falla með liðinu. Fallið lið Aftureldingar í níunda sæti með 12 stig.
0
Góðan dag og verið velkomin með mbl.is í beina textalýsingu frá leik ÍBV og Aftureldingar í Bestu deild kvenna í fótbolta.
Sjá meira
Sjá allt

ÍBV: (4-3-3) Mark: Guðný Geirsdóttir (Auður Scheving 68). Vörn: Sandra Voitane (Helena Jónsdóttir 78), Haley Thomas, Madison Wolfbauer, Júlíana Sveinsdóttir (Selma Björt Sig­ur­sveins­dótt­ir 78). Miðja: Þórhildur Ólafsdóttir (Thelma Sól Óðinsdóttir 68), Hanna Kallmaier, Ameera Hussen. Sókn: Viktorija Zaicikova (Embla Harðardóttir 86), Kristín Erna Sigurlásdóttir, Olga Sevcova.
Varamenn: Auður Scheving (M), Thelma Sól Óðinsdóttir, Selma Björt Sig­ur­sveins­dótt­ir, Helena Jónsdóttir, Lana Osinina, Erna Sólveig Davíðsdóttir, Embla Harðardóttir.

Afturelding: (4-3-3) Mark: Eva Ýr Helgadóttir (Steinunn Erla Gunnarsdóttir 82). Vörn: Elena Brynjarsdóttir, Mackenzie Cherry, Sigrún Gunndís Harðardóttir, Birna Kristín Björnsdóttir (Katrín Rut Kvaran 53). Miðja: Anna Pálína Sigurðardóttir, Sigrún Eva Sigurðardóttir (Eyrún Vala Harðardóttir 65), Hildur Karítas Gunnarsdóttir. Sókn: Ísafold Þórhallsdóttir (Veronica Boix 82), Kristín Þóra Birgisdóttir, Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir (Sara Siguenza 82).
Varamenn: (M), Steinunn Erla Gunnarsdóttir, Sesselja Líf Valgeirsdóttir, Veronica Boix, Katrín Rut Kvaran, Eyrún Vala Harðardóttir, Sara Siguenza, Anna Hedda Björnsdóttir Haaker.

Skot: Afturelding 3 (1) - ÍBV 14 (10)
Horn: ÍBV 5 - Afturelding 4.

Lýsandi: Sara Rós Einarsdóttir
Völlur: Hásteinsvöllur

Leikur hefst
1. okt. 2022 14:00

Aðstæður:
Níu gráður, alskýjað, vestan 12 metrar á sek og bleyta.

Dómari: Steinar Berg Sævarsson
Aðstoðardómarar: Guðmundur Valgeirsson og Magnús Garðarsson

mbl.is

Körfubolti

Meira
L U T Mörk +/- Stig
1 Haukar 18 15 3 1585:1387 198 30
2 Njarðvík 18 13 5 1470:1384 86 26
3 Þór Ak. 18 12 6 1595:1501 94 24
4 Keflavík 18 12 6 1560:1467 93 24
5 Valur 18 8 10 1317:1343 -26 16
12.03 Valur : Njarðvík
12.03 Haukar 97:73 Þór Ak.
05.03 Njarðvík 105:96 Keflavík
05.03 Valur 77:98 Haukar
02.03 Keflavík 96:105 Haukar
02.03 Þór Ak. 84:73 Valur
26.02 Njarðvík 93:80 Þór Ak.
26.02 Keflavík 73:77 Valur
26.03 19:15 Haukar : Njarðvík
26.03 19:15 Þór Ak. : Keflavík
urslit.net
Fleira áhugavert

Körfubolti

Meira
L U T Mörk +/- Stig
1 Haukar 18 15 3 1585:1387 198 30
2 Njarðvík 18 13 5 1470:1384 86 26
3 Þór Ak. 18 12 6 1595:1501 94 24
4 Keflavík 18 12 6 1560:1467 93 24
5 Valur 18 8 10 1317:1343 -26 16
12.03 Valur : Njarðvík
12.03 Haukar 97:73 Þór Ak.
05.03 Njarðvík 105:96 Keflavík
05.03 Valur 77:98 Haukar
02.03 Keflavík 96:105 Haukar
02.03 Þór Ak. 84:73 Valur
26.02 Njarðvík 93:80 Þór Ak.
26.02 Keflavík 73:77 Valur
26.03 19:15 Haukar : Njarðvík
26.03 19:15 Þór Ak. : Keflavík
urslit.net
Fleira áhugavert