Englendingurinn Dylan Williams vann 60 metra hlaup karla í frjálsíþróttakeppni Reykjavíkurleikanna í Laugardalshöll í dag. Jasmine Wilkins var fljótust kvennamegin á 7,47 sekúndum.
Dylan hljóp á 6,87 sekúndum en í öðru sæti var FH-ingurinn Kolbeinn Hörður Gunnarsson á 6,91 sekúndum sem er besti tíminn hans á árinu.
Gylfi Ingvar Gylfason var þriðji á 7,16 sekúndum og Ísak Óli Traustason var næstur á 7,18 sekúndum sem er besti tími þeirra beggja á tímabilinu.
Jasmine hljóp á 7,47 sekúndum og næst var Eir Chang Hlésdóttir úr ÍR á 7,57 sem er persónulegt met. Í þriðja sæti var María Helga Högnadóttir á 7,62 sekúndum.