Stjórnir hjúkrunarheimilanna Eirar, Skjóls og Hamra hafa ráðið Eybjörgu Helgu Hauksdóttur í stöðu forstjóra hjúkrunarheimilanna frá og með 1. desember n.k. Eybjörg verður fjórði forstjóri heimilanna og jafnframt fyrsta konan til að gegna því starfi að því er segir í tilkynningu frá hjúkrunarheimilunum. Meira.