Olíuverð á niðurleið

Bandarískir neytendur hafa dregið úr kaupum á eldsneyti
Bandarískir neytendur hafa dregið úr kaupum á eldsneyti AP

Verð á hrá­ol­íu hef­ur lækkað um­tals­vert í dag eft­ir að birt­ar voru töl­ur sem sýna að eft­ir­spurn eft­ir olíu hef­ur minnkað og birgðir auk­ist í Banda­ríkj­un­um. Verð á hrá­ol­íu til af­hend­ing­ar í júní lækkaði um 2,31 dal í 116,44 dali tunn­an á hrávörumarkaði í New York í dag. Í Lund­ún­um lækkaði verð á Brent Norður­sjávar­ol­íu um 2,31 dal í 114,43 dali tunn­an.

Sam­kvæmt nýrri banda­rískri skýrslu minnkaði eft­ir­spurn eft­ir bens­íni um 6,2% á milli janú­ar og fe­brú­ar og eft­ir öðru fullunnu eldsneyti um 8,5%. Þrátt fyr­ir að fe­brú­ar­mánuður sé styttri en aðrir mánuðir þá virðist sem Banda­ríkja­menn séu að draga úr notk­un eldsneyt­is í kjöl­far hækk­andi verðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK