Hlutafjárboði Marel Food Systems lauk í gær. Alls bárust tilboð að nafnvirði 20.074.615 krónur á genginu 70, að andvirði 1.405.223.050 krónur, sem jafngildir 3,58% af heildarhlutafé félagsins. Stjórn félagsins ákvað að taka öllum tilboðum sem voru að stærstum hluta frá lífeyrissjóðum. Tilgangur útboðsins var að styrkja fjárhag félagsins enn frekar og auka viðskipti með hlutabréf þess.
Hörður Arnarson, forstjóri Marel Food Systems, lýsir yfir
ánægju með góðar undirtektir fagfjárfesta í útboðinu í fréttatilkynningu. „Marel Food Systems er
þakklátt fjárfestum fyrir þann stuðning sem þeir hafa sýnt félaginu með
þátttöku sinni í útboði þessu sem og í fyrri útboðum. Vart þarf að taka fram að
skilyrði á fjármálamarkaði eru afar óvenjuleg.“