Landsbankinn ber við bankaleynd

Merki 365 miðla.
Merki 365 miðla.

Vegna umræðna á Alþingi og í fjölmiðlum í gær um fjölmiðlafyrirtækið 365 og Landsbankann vill bankinn taka fram að honum er óheimilt lögum samkvæmt að tjá sig um einstök viðskipti eða málefni viðskiptamanna sinna og mun sem fyrr fylgja þeim lögum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum.

„Landsbankinn vekur athygli á því að Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður 365, lýsti því yfir síðdegis í gær að Landsbankinn hefði ekki veitt fyrirgreiðslu vegna viðskiptanna sem þar hafi átt sér stað síðustu daga og að allar upplýsingar um annað væru rangar.
 
Landsbankinn vill jafnframt taka fram að bankinn kaupir ekki eða selur félög eða fyrirtæki né hefur milligöngu um slíkt nema með skýru umboði frá eigendum viðkomandi félags.  Bankinn mun hins vegar sem fyrr vernda viðskiptalega hagsmuni sína og þau verðmæti sem felast í eignum bankans."
 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK