Opera stefnir upp

Jón S. von Tetzchner, stofnandi og forstjóri Opera, er íslenskur.
Jón S. von Tetzchner, stofnandi og forstjóri Opera, er íslenskur. mbl.is/Þorkell

Norska hug­búnaðarfyr­ir­tæk­inu Opera, sem fram­leiðir m.a. net­vafra fyr­ir farsíma, hef­ur gengið vel á síðustu mánuðum og var hagnaður fyr­ir­tæk­is­ins tvö­falt meiri á síðasta árs­fjórðungi en bú­ist var við. Gengi bréfa fyr­ir­tæk­is­ins hækkaði um 10% í kaup­höll­inni í Ósló strax í morg­un.

Að sögn norskra fjöl­miðla er höfuðástæðan fyr­ir þess­um ár­angri farsíma­vafr­inn Opera Mini og mik­il aukn­ing á notk­un nets­ins í farsím­um. 

Hagnaður fyr­ir skatta nam 47 millj­ón­um norskra króna sem var 53% aukn­ing frá fyrra árs­fjórðungi. 

Gengi bréfa Opera hef­ur hækkað um 30% í norsku kaup­höll­inni á þessu ári. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK