Hagnaður hjá HB Granda nam 16 milljónum evra, jafnvirði nærri 2,3 milljörðum króna, á síðasta ári en var 20 milljónir árið 2007. Fyrirtækið gerir nú í fyrsta skipti upp í evrum. Á síðasta fjórðungi ársins var 5 milljóna evra hagnaður af rekstrinum en á sama tímabili 2007 var 11 milljóna evra tap.
Rekstrartekjur HB Granda námu 124 milljónum evra á síðasta ári samanborið við 141 milljón evra árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir var 30 milljónir evra eða 24% af rekstrartekjum, en var 31 milljón evra eða 22% árið áður.