Samkvæmt bráðabirgðatölum, sem Hagstofan birti í morgun, nam útflutningur 31,7 milljörðum króna í apríl og innflutningur 29,4 milljörðum króna. Vöruskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 2,3 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.
Samkvæmt þessu hefur afgangur á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, mumið 16,9 milljörðum króna fyrstu fjóra mánuði ársins.
Í apríl í fyrra var 7,3 milljarða króna halli á vöruskiptum og 32 milljarða króna halli, miðað við þáverandi gengi, á vöruskiptunum fyrstu fjóra mánuðina.