Sæstrengurinn Danice, sem lagður var milli Íslands og Danmerkur, var tekinn í notkun í dag þegar Vodafone opnaði fyrir umferð viðskiptavina sinna um strenginn.
Í tilkynningu frá Farice og Vodafone segir, að strengurinn tryggi aukið öryggi í gagnaflutningi til og frá Íslandi auk þess sem netsamband við umheiminn verði bæði hraðara og enn tryggara en áður.
Þá kemur fram að Vodafone hafi nú tryggt sér fjórar mismunandi gagnatengingar við umheiminn, sem tryggi meira samskiptaöryggi en önnur fjarskiptafyrirtæki á Íslandi. Hinir sæstrengirnir eru Farice-1, sem liggur milli Íslands, Færeyja og Skotlands, Cantat-3 sem tengir Evrópu og Kanada, og Greenland Connect sem tengir saman Ísland, Grænland og Kanada.