Félag í meirihlutaeigu Auðar I fagfjárfestasjóðs hefur undirritað samning um kaup á Já upplýsingaveitum ehf. af Skiptum hf. Sigríður Margrét Oddsdóttir verður áfram framkvæmdastjóri Já og Katrín
Olga Jóhannesdóttir verður stjórnarformaður félagsins. Þær hafa
jafnframt keypt hlut í félaginu.
Já annast útgáfu Símaskrárinnar, rekstur 118 og upplýsingavefjarins Já.is. Fyrir fimm árum var þessi starfsemi færð frá Símanum yfir til Já, sem er sjálfstætt félag.
Auður I er fagfjárfestasjóður sem fjárfestir í fyrirtækjum sem hafa vaxtarmöguleika, gjarnan í meirihlutaeigu eða undir stjórn kvenna, eða þar sem aðkoma Auðar getur leyst úr læðingi aukin verðmæti, samkvæmt tilkynningu.
Rúmlega 20 fjárfestar koma að sjóðnum, þar á meðal flestir af stærstu lífeyrissjóðum landsins auk annarra stofnana- og fagfjárfesta.
Fyrirtækjaráðgjöf Auðar Capital hf. var ráðgjafi í viðskiptunum.