Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 5,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Á sama tímabili í fyrra var hagnaðurinn 6,2 milljarðar og dróst hagnaður bankans því saman milli ára.
Þetta kemur fram í uppgjöri sem bankinn birti i dag.
Arðsemi eigin fjár var 9,8% á ársgrundvelli samanborið við 11,4% á fyrsta fjórðungi í fyrra. Markmið bankans er að hlutfallið sé hærra en 10% og er arðsemi eigin fjár því aðeins undir markmiðum.
Hreinar vaxtatekjur námu 12,1 milljarði króna á fyrsta ársfjórðungi 2024 og drógust saman um 2,4% samanborið við 12,4 milljarða króna árið áður. Hreinar þóknanatekjur lækkuðu um 5,0% samanborið við fyrsta ársfjórðung 2023 og námu samtals 3,3 milljörðum króna á fjórðungnum.
Aðrar rekstrartekjur námu 1.098 milljónum króna en voru 43 milljónir á fyrsta ársfjórðungi 2023.
Kostnaðarhlutfall bankans var 44,9% á fjórðungnum. Það kemur fram í tilkynningu að það hlutfall sé í samræmi við afkomuspá bankans um kostnaðarhlutfall á bilinu 40-45% og nær fjárhagslegu markmiði bankans um að kostnaðarhlutfall sé lægra en 45%.
Stjórnunarkostnaður nam 7,4 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2024 og hækkaði um 5% milli ára.
Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka segir í tilkynningunni að núverandi umhverfi sé krefjandi.
„Hátt vaxtaumhverfi og þrálát verðbólga hafa sett sitt mark á umræðuna og vísbendingar eru um samdrátt í einkaneyslu. Þá heldur sókn viðskiptavina í verðtryggð húsnæðislán áfram.
Núverandi umhverfi er krefjandi fyrir fyrirtæki landsins en þrátt fyrir það er ekki að merkja mikla aukningu í vanskilum fyrirtækja á undanförnum mánuðum og eignagæði eru enn góð. Í lok apríl bárust loks fréttir af hjöðnun verðbólgu sem hefur ekki mælst jafn lág í rúm tvö ár,“ er haft eftir Jóni Guðna í tilkynningu.