Tveir nýir stjórnendur hjá Orkusölunni

Vigdís og Eydís.
Vigdís og Eydís. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Tveir nýir stjórnendur hafa verið ráðnir til Orkusölunnar á undanförnum vikum.

Vigdís Hauksdóttir mun sinna starfi sölustjóra sem snýr að því að halda utan um söluteymi Orkusölunnar, skipuleggja sölu, kanna viðskiptatækifæri og sinna uppbyggingu viðskiptatengsla við fyrirtæki í viðskiptum.

Vigdís starfaði áður hjá Landsvirkjun sem viðskiptastjóri en þar átti hún í daglegum samskiptum við viðskiptavini Landsvirkjunar, ásamt því að fást við endursamninga og þróa nýjar vörur, að því er segir í tilkynningu.

„Raforkumarkaðurinn hefur tekið miklum breytingum að undanförnu og mér finnst spennandi að fá að taka þátt í að aðlaga starfsemi Orkusölunnar að þeim breytingum. Ég hlakka til að verða hluti af þessum heillandi vinnustað og geta boðið upp á besta stuðið til heimila og fyrirtækja í landinu,“ segir Vigdís í tilkynningunni.

Eydís Dögg Eiríksdóttir hefur þá tekið við starfi þjónustustjóra. Hún stýrir verkefnum við að þjónusta núverandi viðskiptavini ásamt því að leiða umbætur á þjónustuferlum Orkusölunnar í samræmi við framtíðarsýn þess.

„Ég er ótrúlega heppin að fá tækifæri til að vera hluti af frábærum hópi fólks sem starfar hjá Orkusölunni. Starf mitt sem þjónustustjóri er nýtt starf sem ég er mjög spennt að takast á við og móta,“ segir Eydís í tilkynningunni.

Eydís starfaði áður hjá Motus sem lykilviðskiptastjóri en þar sá hún meðal annars um umsjón og ábyrgð á viðskiptasafni stærri viðskiptavina, samningagerð og innleiðingu á þjónustuleiðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK