Stórfyrirtæki mögulega á förum

Róbert Guðfinnsson
Róbert Guðfinnsson Árni Sæberg

Siglfirska líftæknifyrirtækið Genís er metið á 23 milljarða króna, sé miðað við verðmat í tengslum við 1,1 milljarðs króna hlutafjáraukningu sem ráðist var í fyrir skemmstu. Róbert
Guðfinnsson stofnandi fyrirtækisins fer með 70% hlut í félaginu og er hann samkvæmt þessu metinn á 16 milljarða króna.

Róbert segir að stefnumörkun á komandi mánuðum muni leiða í ljós hvort félagið eigi sér framtíð á Siglufirði eða annars staðar. Vonbrigði séu fólgin í því að sveitarfélagið hafi ekki ráðist í uppbyggingu í samfélaginu sem samkomulag náðist um fyrir 12 árum. Í þeim samningi skuldbatt Róbert sig til þess að fjárfesta myndarlega í samfélaginu, m.a. með hóteluppbyggingu og innspýtingu í uppbyggingu íþróttamannvirkja.

Genís er líftæknifyrirtæki á Siglufirði og vinnur úr lífríki sjávar.
Genís er líftæknifyrirtæki á Siglufirði og vinnur úr lífríki sjávar. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Róbert er gestur Dagmála á mbl.is og greinir þar frá því að á þessum tíma hafi hann fjárfest fyrir um fjóra milljarða í fyrrnefndum verkefnum og aðra eins fjárhæð í Genís.

Bendir hann á að til þess að fyrirtæki geti dafnað og laðað til sín hæfileikafólk þurfi samfélagið að bjóða upp á lífsgæði sem felist í öðru en góðum launum. Þar hafi stjórnmálamenn á Siglufirði brugðist.

Dagmál eru opin öllum í dag og má sjá þáttinn hér fyrir neðan.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK