Eignaumsjón kaupir Fjöleignir

Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar og Jón Bjarni Kristjánsson, framkvæmdastjóri KRST …
Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar og Jón Bjarni Kristjánsson, framkvæmdastjóri KRST lögmanna, handsala samkomulagið.

Húsfélagaþjónustan Eignaumsjón hf. hefur fest kaup á Fjöleignum ehf., húsfélagaþjónustu KRST lögmanna ehf. og takur við allri þjónustu við viðskiptavini í samræmi við gildandi þjónustusamninga.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Eignaumsjón tekur formlega við rekstri Fjöleigna í byrjun júlí 2024 samkvæmt tilkynningunni en starfsfólk Fjöleigna kemur þá til starfa á skrifstofu Eignaumsjónar að Suðurlandsbraut 30, sem tryggir að hús- og rekstrarfélög frá Fjöleignum njóta eftir sem áður þjónustu starfsfólks sem þekkir vel til mála, eins og segir einnig í tilkynningunni.

Aukin þörf fyrir sérhæfðari þjónustu

„Það fellur ekki að kjarnastarfsemi KRST lögmanna að eiga og reka húsfélagaþjónustu. Miklar breytingar eru að eiga sér stað á þessum markaði og rekstur fjöleignarhúsa alltaf að verða flóknari og umfangsmeiri. Aukin þörf er fyrir sérhæfingu sem stærri þjónustuaðili á betra með að veita. Það er góð lausn að okkar mati að Eignaumsjón, sem er öflugur aðili á þessum markaði, taki við keflinu til að tryggja að vel verði hugsað um viðskiptavini Fjöleigna og hagsmuni þeirra,“ segir Jón Bjarni Kristjánsson, framkvæmdastjóri KRST lögmanna í tilkynningunni.

Góð þjónusta og skilvirkar tæknilausnir

„Við hlökkum til að takast á við þessa áskorun og fögnum nýju starfsfólki sem kemur til liðs við okkur. Eignaumsjón hefur verið leiðandi í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fjöleignarhúsa, allt frá því að félagið tók til starfa árið 2000. Við ætlum okkur að þróa þá þjónustu enn frekar til að mæta enn betur sívaxandi þörfum eigenda fasteigna með öruggri og góðri þjónustu,“ segir Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK