Iðnver ehf hefur gert samning við þýska fyrirtækið Huber Technology um að gerast umboðsaðili fyrir fyrirtækið á Íslandi.
Huber sérhæfir sig í nýsköpun og tækninýjungum fyrir skólp og iðnaðarskólp en þetta er í fyrsta skipti sem vörur fyrirtækisins verða til sölu á Íslandi.
„Ég er mjög ánægður með að við höfum náð þessum stóra samningi við Huber sem hefur verið tvö ár í vinnslu. Huber er gamalgróið og þekkt fyrirtæki í þessum geira. Huber hefur aldrei verið með vörur sínar til sölu á Íslandi áður og því eru þetta ákveðin tímamót,“ er haft eftir Pétri Blöndal, framkvæmdastjóra og eiganda Iðnvers, í tilkynningu.
„Við finnum strax fyrir miklum áhuga og eftirspurn frá íslenskum fyrirtækjum á vörum frá Huber. Það kemur raunar ekki á óvart enda er þetta byltingarkenndur tæknibúnaður og vörur sem fyrirtækið er að bjóða upp á í tengslum við skólp og allt sem því viðkemur,“ segir hann.
Pétur segir það stórt skref að geta nú boðið upp á vörur Huber fyrir iðnfyrirtæki og einnig sveitafélög frá þessu þekkta þýska fyrirtæki.
„Þetta eru stórar fréttir fyrir iðnaðinn í heild sinni því tæknibúnaðurinn frá Huber getur t.d tekið prótein úr iðnaðarvatni, frárennsli frá t.d fiskiðnaði og komið því í bræðslu. Það sparast tugir rúmmetra á dag sem hægt er að endurnýta sem annars hefðu farið til spillis. Það eru því mikil verðmæti sem sparast í þessu hringrásarkerfi“.
Hann segir þetta jafnframt gríðarlega mikilvæga tækni og búnað fyrir allan mengandi iðnað.
Framundan er mikil endurskoðun á mengandi iðnaði og úrgangi frá honum. Við Íslendingar erum aftarlega á merinni hvað þetta varðar miðað við flest Evrópulönd og það er ljóst að það verða miklar breytingar á næstu árum hér á landi,“ segir Pétur.