Kolbeinn tekur við sem sviðsstjóri

Kolbeinn Finnsson.
Kolbeinn Finnsson. Ljósmynd/Aðsend

Kolbeinn Finnsson mun um næstu áramót taka við sem sviðsstjóri mannauðs og rekstrar hjá Olís eftir að Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir hættir sem sviðsstjóri sökum aldurs.

Hún hefur starfað hjá fyrirtækinu í rúm 30 ár og hefur síðustu ár setið í framkvæmdastjórn þess, að því er segir í tilkynningu. Kolbeinn mun einnig setjast í framkvæmdastjórn.

Kolbeinn hefur undanfarið ár starfað sem rekstrarráðgjafi hjá Gott og gilt. Þar áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Festi frá 2018 til 2023. Hann er menntaður hagfræðingur frá Háskóla Íslands.

„Við bjóðum Kolbein velkominn til starfa hjá Olís og hlökkum til samstarfsins við hann. Kolbeinn býr yfir áralangri reynslu sem mun nýtast Olís og mannauði þess vel. Hjá Olís starfar einstakur hópur starfsfólks sem hefur skapað þá fyrirtækjamenningu sem við búum að og gerir fyrirtækið að eftirsóknarverðum vinnustað. Kolbeinn tekur við góðu búi frá fráfarandi sviðsstjóra en starfsánægja hefur í langan tíma mælst vel yfir meðaltali samanburðarfyrirtækja,“ segir Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri Olís, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK