Umsvif ríkissjóðs áhyggjuefni

Gluggar þvegnir í fjármálaráðuneytinu.
Gluggar þvegnir í fjármálaráðuneytinu. mbl.is/Hari

Agnar Tómas Möller, fjárfestir á skuldabréfamarkaði, óttast að versnandi lánsfjárþörf ríkissjóðs valdi ruðningsáhrifum á skuldabréfamarkaði. Óvíst sé hvort kjör annarra útgefenda muni batna þegar og ef vaxtalækkunarferli hefst. Samkvæmt fjármálaáætlun sem kynnt var fyrr á árinu versnar lánsfjárjöfnuður næstu árin mikið frá fyrri áætlun.

„Á árinu 2025 og 2026 eru gríðarstórir gjalddagar auk víxlanna sem eru allt of dýr fjármögnun til að réttlæta til lengri tíma í jafnmiklum mæli. Að viðbættri lánsfjárþörf samkvæmt fjármálaáætlun, sem er að miklu leyti óútfærð, gæti ríkissjóður því verið með hátt í 800 milljarða fjármögnunar- og endurfjármögnunarþörf næstu tvö árin, auk þess sem óvissa er um uppgjör 230 milljarða króna covid-lánveitingar Íbúðalánasjóðs til ríkisins ef ætlunin er að setja sjóðinn í slit.“

Hægt er að lesa nánar um málið í ViðskiptaMogganum sem fylgir Morgunblaðinu í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK