Íslandshótel fá aðild að Glasgow-yfirlýsingunni

Íslandshótel reka meðal annars Grand Hótel Reykjavík.
Íslandshótel reka meðal annars Grand Hótel Reykjavík. Ljósmynd/Aðsend

Heimssamtök ferðamálaþjónustu Sameinuðu þjóðanna hafa formlega samþykkt aðild Íslandshótela að Glasgow-yfirlýsingunni um loftslagsaðgerðir í ferðaþjónustu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandshótelum

„Íslandshótel er þannig fyrsta íslenska ferðaþjónustufyrirtækið og fyrsta hótelkeðjan á Íslandi sem tekur þar þátt, en fyrir var Íslenski ferðaklasinn. Þessi merki áfangi undirstrikar enn frekar skuldbindingu Íslandshótela um sjálfbærni og ábyrga ferðaþjónustu,“ segir í tilkynningunni. 

Ferðamenn séu meðvitaðir um umhverfismál

Fram kemur að Glasgow-yfirlýsingunni hafi formlega verið hleypt af stokkunum á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í samnefndri borg í Skotlandi árið 2021. Með aðild að yfirlýsingunni skuldbindi þátttakendur sig til að minnka kolefnislosun sína um helming fyrir 2030 og ná núllpunkti fyrir árið 2050.

„Með aðild að Glasgow-yfirlýsingunni getum við enn frekar innleitt árangursríka verkferla á sviði sjálfbærni og umhverfisverndar. Ferðamenn í dag eru mjög meðvitaðir um umhverfismál og með þessu skrefi sýnum við svart á hvítu að Íslandshótel eru ekki aðeins leiðandi á þessu sviði, heldur munu halda áfram að taka stór skref í þessari vegferð. Umhverfismál eru okkar hjartans mál og við fögnum þessum áfanga sem félagið hefur nú náð,“ er haft eftir Davíð Torfa Ólafssyni, forstjóra Íslandshótela, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK