Ný stjórn Samtaka vefiðnaðarins, SVEF, hefur tekið til starfa. Björgvin Pétur Sigurjónsson hefur tekið við formennsku af Lindu Lyngmo, en hún hefur setið í formannsstólnum undanfarið ár.
Þetta kom fram í tilkynningu frá samtökunum.
Auk Björgvins koma þau Anna Kolbrún Jensen, Brian Johannessen, Einar Ben, Kristín Jóna Þorsteinsdóttir, Sigurður Snær Eiríksson, Sigurjón Rúnar Vikarsson og Sveinn Steinarsson öll ný inn í stjórn SVEF en Valeria R. Alexandersdóttir sat einnig í stjórn í fyrra ásamt Björgvini.
SVEF eru félagasamtök þeirra sem starfa við vefmál hér á landi og markmið samtakanna miðla þekkingu og efla fagleg vinnubrögð í greininni.
Í samtökunum eru rúmlega þrjú hundruð manns sem koma úr ýmsum áttum atvinnulífsins. Meðal annars eru meðlimirnir vefarar, forritarar, hönnnuðir, markaðsstjórar, prófarar, framkvæmdastjórar og ráðgjafar svo dæmi séu tekin.