Ríkið þurfi að draga úr útgjöldum

Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota var gestur á fundi Kompanís í …
Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota var gestur á fundi Kompanís í morgun. mbl.is/Eyþór

Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota og stjórnarformaður Bláa lónsins var gestur á fundi Kompanís, viðskiptaklúbbi Morgunblaðsins, í morgun. Rætt var um starfsemi Toyota, ferðaþjónustuna, stöðuna í efnahagslífinu og fleira.

Þegar talið barst að efnahagsmálum skaut Úlfar á stjórn­völd og sagði að á meðan rík­is­sjóður væri rek­inn með halla þá væri erfitt að sjá hvernig verðbólg­an geti farið niður.

„Það er stærsta vanda­málið og á sama tíma þá er gerður sam­göngusátt­máli með til­heyr­andi kostnaði. Hver ætl­ar að borga fyr­ir þetta? Ríkið þyrfti að losna við 70-80 millj­arða af vaxta­gjöld­um hvert ár áður en ráðist er í nýtt verk­efni. Til að verðbólg­an fari al­menni­lega niður þá þarf rík­is­sjóður að draga úr sín­um út­gjöld­um,“ seg­ir Úlfar.

Hann bæt­ir við að háir vext­ir séu eins og auka­skatt­ur á alla og geri það að verk­um að fólk eigi minna á milli hand­anna og biðji um hærri laun.

„Verka­lýðsfor­ingjarn­ir beina alltaf gagn­rýni sinni að alltaf að seðlabank­an­um en tala aldrei um rík­is­sjóð,“ seg­ir Úlfar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK