Þýsk tryggingasamsteypa kaupir Tryggja

Smári Ríkarðsson, framkvæmdastjóri Tryggja, Bernd Knof, formaður stjórnar, og Baldvin …
Smári Ríkarðsson, framkvæmdastjóri Tryggja, Bernd Knof, formaður stjórnar, og Baldvin Samúelsson, stjórnarmaður hjá Tryggja og Leading Brokers United á Íslandi.

Vátryggingamiðlunin Tryggja hefur verið seld til samevrópsku tryggingasamstæðunnar GGW Group í Þýskalandi. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þetta er í fyrsta skipti sem erlend tryggingasamsteypa kaupir íslenskan vátryggingamiðlara frá því að miðlarafyrirtæki fengu starfsleyfi á Íslandi. Elst meðal íslenskra miðlarafyrirtækja er Tryggja en fyrirtækið hefur verið starfandi frá árinu 1995.

Söluvirði félagsins er trúnaðarmál en í samtali við ViðskiptaMoggann segir Baldvin Samúelsson, annar tveggja eigenda Tryggja fyrir söluna, að um sé að ræða fjárhæð sem sem endurspegli vöxt og árangur fyrirtækisins.

Hundruð milljóna velta

Tryggja velti 722 milljónum króna á síðasta ári og jókst veltan um 20% frá fyrra ári. Rekstrarhagnaður félagsins (EBITDA) nam 124 milljónum og hagnaður 90 milljónum.

Bókfært virði eigna í árslok nam 530 milljónum króna en þar af nam eigið fé 223 milljónum.

Í ársreikningi félagsins fyrir síðasta ár kom fram að Ösp líftryggingarfélag yrði væntanlega einn af stóru þáttum félagsins í daglegri starfsemi. Spurður segir Baldvin Ösp ekki vera hluta af sölunni en félögin muni áfram vera í nánu samstarfi.

Í ársreikningi kemur fram að gerður hafi verið samningur um yfirfærslu hluta af framtíðar vátryggingastofni Tryggja til Aspar þegar síðarnefnda félagið fær starfsleyfi. Baldvin segir samninginn halda þrátt fyrir söluna.

Yfirfærslan mun fela það í sér að í stað þess að erlendir aðilar ákvarði um bótaskyldu viðskiptavina, eins og það er í dag, þá yrði það í höndum innlendra aðila í gegnum Ösp.

„Það að þjónustan verði frá A-Ö á Íslandi eykur þjónustustig við núverandi viðskiptavini okkar þegar Öspin fær starfsleyfi,“ segir Baldvin.

Beðið eftir starfsleyfi Aspar

Hann segir starfsleyfisumsókn Aspar vera í farvegi hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

„Við bindum vonir við það að félagið geti farið að starfa upp úr áramótum. Það hefur verið langur aðdragandi að þessu en þetta ferli tekur bara sinn tíma og það er verið að vinna að þessu í góðu samstarfi við Seðlabankann,“ segir hann.

Tryggja er jafnframt með samning við Ösp um afnot og rekstur á tölvukerfi sem var hannað og þróað af Tryggja og Tryggja mun sjá um bakvinnslu fyrir félagið þegar starfsleyfi frá SÍ hefur fengist.

GGW group víkkar út starfsemi sína

Með sölunni til þýsku samsteypunnar verður Tryggja samstarfsfyrirtæki Leading Brokers United, en undir þeim hatti eru vátryggingamiðlanir GGW Group sameinaðar.

Í tilkynningunni kemur fram að með kaupunum sé GGW Group að víkka enn frekar út starfsemi sína í Evrópu og á leið inn á spennandi vátryggingamarkað að mati forsvarsmanna GGW Group.

Með því að ganga til liðs við GGW Group skapist ótal tækifæri fyrir Tryggja til að tengjast fjölbreyttum hópi vátryggingamiðlara og MGA-miðlara hjá GGW Group í Þýskalandi og öðrum Evrópulöndum, þá sérstaklega með tilliti til atvinnugreina og sérsviða.

Þá segir að með því að vera „coverholder“ hjá Lloyd’s muni Tryggja jafnframt efla ásýnd GGW-samstæðunnar á markaðnum og auka aðdráttarafl hennar gagnvart innlendum og alþjóðlegum vátryggjendum.

Falla fullkomlega að framtíðarsýninni

„Við hlökkum mikið til að vinna með kollegum okkar hjá GGW Group og þeirra samstarfsfyrirtækjum. Með þeirra sérsniðna vöruframboði og rótgrónum viðskiptasamböndum við atvinnulíf og einkaaðila jafnt sem vátryggjendur, mun Tryggja án efa leggja sitt af mörkum til áframhaldandi velgengni GGW Group,“ er haft eftir Baldvini í tilkynningunni.

Þá er haft eftir Smára Ríkarðssyni, hinum eiganda Tryggja fyrir söluna og framkvæmdastjóra að þeir séu spenntir fyrir samrunanum.

„Sem rótgróið fyrirtæki á íslenska markaðnum með frábær viðskiptasambönd yfir landamæri, erum við spennt fyrir samrunanum við GGW Group, einn farsælasta og örast vaxandi vátryggingamiðlara í Evrópu,“ segir hann.

Þá kveðst Dr. Tobias Warweg, stofnandi og forstjóri GGW Group, einnig ánægður með viðskiptin. „Baldvin og Smári, með sinni snerpu, framsýnum hugmyndum og kraftmiklu teymi, falla fullkomlega að okkar framtíðarsýn um að gera GGW Group leiðandi á markaðnum í Evrópu,” segir hann í tilkynningunni.

Um Tryggja og GGW Group

Tryggja var stofnað með það að markmiði að innleiða erlendar vátryggingar á íslenska markaðinn.

Í dag starfar Tryggja náið með fjölda evrópskra og alþjóðlegra vátryggingafélaga, annast tjónauppgjör á Íslandi og býður fram þjónustu sína sem Lloyd’s “coverholder”.

Hjá fyrirtækinu starfa um 20 manns sem þjónusta fjölbreyttan hóp viðskiptavina úr atvinnulífi og stjórnsýslu.

GGW Group eru samtök hæfra, fullgildra og eigendastýrðra vátryggingamiðlara sem sameinast undir yfirheitinu Leading Brokers United, og MGA-miðlara sem sameinast undir vörumerkinu Wecoy Underwriting.

Frá stofnun þess árið 2020 í Þýskalandi hafa meira en 60 samstarfsfyrirtæki gengið til liðs við GGW Group í Þýskalandi og öðrum Evrópulöndum. Meira en 1.800 manns starfa nú hjá samstæðunni sem er meðal leiðandi aðila í greininni.

Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Hamborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK