Fastir á Íslandi í Hörpu

Flugráðstefnan Grounded in Iceland hófst í dag.
Flugráðstefnan Grounded in Iceland hófst í dag. Ljósmynd/Colourbox

Grounded in Iceland ráðstefnan hófst í Hörpu í dag, en um er að ræða fyrstu og einu ráðstefnu sinnar tegundar á heimsvísu þar sem stjórnendur og sérfræðingar frá flugfélögum um heim allan koma saman til þess að ræða hvernig bæta megi upplifun farþega þegar flug raskast.

Í tilkynningu vegna ráðstefnunnar kemur fram að hún sé haldin á vegum AviLabs, íslensks félag sem er leiðandi í þróun lausna sem veita flugfélögum heildarinnsýn og leiðir til þess að leysa úr ferðarofi farþega.

17.000 urðu fyrir röskun á Íslandi í ágúst

Fram kemur að um 33 milljónir flugfarþega hafi orðið fyrir röskun af einhverju tagi í hverjum mánuði á þessu ári. Eingöngu í ágúst voru um 17.000 flugfarþegar á Íslandi í þessum sporum, að flugi þeirra var seinkað, aflýst eða raskað með öðrum hætti.

Auk neikvæðs orðspors, slæmrar upplifunar farþega og gífurlegrar vinnu við að koma flugáætlunum aftur í samt far, kosta slíkar raskanir flugfélög um 4-8% af heildartekjum, segir í tilkynningunni, en það samsvarar um 60 milljörðum Bandaríkjadala á heimsvísu árlega. 

„Það er til mikils að vinna fyrir flugfélög að bæta upplifun farþega þegar flug raskast. Við hér á Íslandi erum þessu ekki ókunnug, en náttúruhamfarir og veðurfar setja strik í reikninginn við að halda flugi á áætlun,“ er haft eftir Sveini Akerlie, framkvæmdastjóra AviLabs.

„Grounded in Iceland er vettvangur fyrir leiðtoga og sérfræðinga til að kynna og ræða umfang og áhrif flugraskana og hvaða úrræðum má beita til þess að lágmarka kostnað, draga úr neikvæðum áhrifum á rekstur en ekki síst bæta upplifun farþega,“ seigr hann enn fremur.

Flugrisar á meðal gesta

Um eitt af hverjum tíu flugfélögum í heiminum taka þátt í ráðstefnunni en þau flytja samanlagt um 20% allra farþega á heimsvísu. Þannig eru fulltrúar United, Southwest, British Airways, Virgin Atlantic, SAS, Emirates, Etihad, Icelandair og Play á meðal gesta.

Ráðstefnan fer fram dagana 11. og 12. september í Hörpu.

„Öryggismál og stjórnun ferðarofs eru þeir málaflokkar þar sem flugfélög leitast eftir samstarfi frekar en samkeppni, til þess að þróa betri lausnir fyrir geirann allan,“ er haft eftir Jay Fulmer, stjórnanda stefnumótunar og nýsköpunar hjá United Airlines í tilkynningunni.

„Grounded in Iceland verður spennandi vettvangur samtals og skoðanaskipta, en ekki síður tækifæri til þess að upplifa Ísland og kynnast arfleifð Íslendinga í flugi.“

Íslenskur frumkvöðull í lausnum við ferðarofi

Ráðstefnan er haldin af AviLabs, frumkvöðli í þróun hugbúnaðar sem heldur utan um stjórnun ferðarofs og sjálfvirknivæðir fjölda ferla sem eiga sér stað þegar flugum er seinkað, aflýst eða þau raskast með öðrum hætti.

Aðallausn félagsins, Plan3, gerir flugfélögum kleift að draga úr kostnaði og bæta upplifun farþega þegar raskanir eiga sér stað, auk þess að stýra samskiptum við farþega með einföldum hætti.

Félagið vinnur að öflugri vöruþróun og markaðssókn og er nú þegar í samstarfi við flugfélög hérlendis og erlendis.

Félagið var stofnað 2019 af hópi með viðamikla reynslu af fluggeiranum og hugbúnaðarþróun.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK