Evrópski seðlabankinn lækkar vexti

Christine Lagarde, bankastjóri evrópska seðlabankans.
Christine Lagarde, bankastjóri evrópska seðlabankans. AFP

Evrópski seðlabankinn hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 25 punkta og standa meginvextir seðlabankans því í 3,50%.

Síðasta vaxtalækkunin kom í júní í sumar en þá lækkuðu vextir einnig um 0,25 prósentustig og var það fyrsta vaxtalækkun bankans frá árinu 2019.

Vaxtalækkunin kemur vegna þess að verðbólga hefur almennt minnkað í ESB-löndum undanfarið, eftir að hún fór hæst í um tíu prósent á evrusvæðinu í október 2022.

Seðlabankinn rökstyður lækkunina með því að hún sé enn eitt skrefið í átt að minni aðhaldi peningastefnunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK