Fjöldi tilboða borist í Wok on

Einar Hugi Bjarnason, skiptastjóri Wok on ehf, segir mörg tilboð …
Einar Hugi Bjarnason, skiptastjóri Wok on ehf, segir mörg tilboð hafa borist. Ljósmynd/Aðsend

„Það er ekki búið að selja þetta í heild sinni en hins vegar hafa borist tilboð vegna einstakra staðsetninga. Ákveðnar einingar innan Wok on. Ég á von á því að það skýrist endanlega í næstu viku hvað verður um þetta,“ segir Einar Hugi Bjarnason, skiptastjóri hjá Wokon ehf. 

Eins og fram hefur komið setti hann Wok on staðina í söluferli eftir að félagið sem var í eigu Quang Le, sem sætir rannsókn lögreglu vegna gruns um mansal, peningaþvætti og skipulagða brotastarfsemi, var úrskurðað gjaldþrota.

Fleiri sýnt eignum á höfuðborgarsvæðinu áhuga 

„Tilboðsgjafar hafa skoðun á því hvaða staðsetningar þeir telja heppilegastar. Það er alveg klárt að menn eru að meta þetta með mismunandi hætti. Þetta voru ekki bara veitingastaðir á höfuðborgarsvæðinu. Wok-on var einnig í Krónunni á Akureyri, Á Vík í Mýrdal og Hveragerði. En það eru fleiri sem hafa sýnt eignunum á höfuðborgarsvæðinu áhuga,“ segir Einar Hugi. 

Tilboð borist í flestar einingar 

Í heild er um að ræða níu einingar sem eru til sölu. Þrjár voru inni í Krónu búðum. Þrjár voru í ólíkum mathöllum, í Borgartúni, í Gróðurhúsinu í Hveragerði og á Höfða. Einnig voru reknir  veitingastaðir á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði og á Smáratorgi í Kópavogi. Þá var rekstur samkvæmt sérleyfissamningi í Vík í Mýrdal. 

„Það hafa borist tilboð í flestar af þessum staðsetningum. Einhverjir hafa viljað stofna nýjan rekstur á fleiri en einum stað. Einhverjir undir merkjum Wok on en fleiri sem hafa ekki hugsað sér að kaupa vörumerkið,“ segir Einar Hugi.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK