Birkir og Vésteinn í framkvæmdastjórn Símans

Tvö ný svið verða til innan fyrirtækisins og verður eitt …
Tvö ný svið verða til innan fyrirtækisins og verður eitt lagt niður. mbl.is/Hari

Tekin hefur verið ákvörðun um að breyta skipuriti Símans. Eru breytingarnar hluti af framtíðarsýn félagsins og endurspegla fyrst og fremst aukna áherslu á sölu, markaðssetningu og upplifun viðskiptavina og fela í sér að tvö ný svið verða til innan fyrirtækisins og eitt svið lagt niður.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá Símanum.

Sviðin sem verða til við breytingarnar eru Auglýsingamiðlun og Miðlar. Þá verður sviðið Sjálfbærni og menning lagt niður.

Muni styrkja enn frekar stærstu efnisveitu landsins

„Auglýsingamiðlun er nýtt tekjusvið þar sem auglýsingalausnir Símans og dótturfélagsins Billboard munu saman þróa og festa í sessi nútímalegar auglýsingalausnir ásamt frekari nýsköpun þar sem gögn og gervigreind spila stórt hlutverk. Vésteinn Gauti Hauksson er nýr framkvæmdastjóri Auglýsingamiðlunar en hann kemur til Símans frá Billboard,“ segir í tilkynningunni.

Vésteinn Gauti Hauksson er nýr framkvæmdastjóri Auglýsingamiðlunar hjá Símanum.
Vésteinn Gauti Hauksson er nýr framkvæmdastjóri Auglýsingamiðlunar hjá Símanum. Ljósmynd/Síminn

 „Miðlar er nýtt svið þar sem sjónvarpsefni og markaðsmál sameinast undir stjórn Birkis Ágústssonar sem tekur sæti í framkvæmdastjórn. Sviðið mun stýra framleiðslu á innlendu sjónvarpsefni, innkaupum á erlendu sjónvarpsefni ásamt því að stýra ásýnd vörumerkis Símans. Nýtt svið mun styrkja enn frekar stærstu efnisveitu landsins, Sjónvarp Símans Premium og hefja markaðslega sókn Símans á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði ásamt því að efla sjónvarpsþjónustu Símans í heild sinni fram á við,“ segir þar enn fremur.

Birkir Ágústsson tekur sæti í framkvæmdastjórn.
Birkir Ágústsson tekur sæti í framkvæmdastjórn. Ljósmynd/Síminn

Kemur þá fram að nú þegar sviðið Sjálfbærni og menning verði lagt niður muni sjálfbærnimál færast til fjármálasviðs en verða áfram unnin þvert á félagið og við breytingarnar muni Erla Ósk Ásgeirsdóttir láta af störfum sínum hjá Símanum.

Rökrétt framhald af þróun fyrirtækisins

„Ég geng stolt frá borði. Þetta hafa verið viðburðarrík ár hjá Símanum. Við höfum áorkað miklu saman sem við getum öll verið stolt af og ég óska starfsfólki Símans alls hins besta í framtíðinni enda einstakur mannauður sem starfar hjá Símanum,“ er haft eftir Erlu Ósk.

„Þær breytingar sem við kynnum nú á skipuriti félagsins eru rökrétt framhald af þeirri þróun fyrirtækisins að leggja aukna áherslu á vöruþróun og þjónustuupplifun,“ er haft eftir Maríu Björk Einarsdóttir, forstjóra Símans.

Segir hún einnig að sviðið Auglýsingamiðlun verði nýtt tekjusvið og sjái fyrirtækið mikil tækifæri í því að þróa þjónustuframboð sitt áfram og festa auglýsingamiðlun í sessi sem sterka tekjustoð í kjölfarið á vel heppnaðri fjárfestingu í Billboard.

„Ég vil þakka Erlu Ósk Ásgeirsdóttur kærlega fyrir hennar framlag til fyrirtækisins á síðustu árum. Erla hefur leitt stór verkefni innan Símans með góðum árangri, þar með talið endurmörkun vörumerksins, stefnumótunarvinnu og innleiðingu sjálfbærnistjórnkerfis. Við óskum henni velfarnaðar á nýjum vettvangi,“ er haft eftir forstjóranum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK