Ný stjórn WomenTechIceland

Nýja stjórnin sem samtökin WomenTechIceland greina frá í tilkynningu sinni.
Nýja stjórnin sem samtökin WomenTechIceland greina frá í tilkynningu sinni. Ljósmynd/Aðsend

Félagasamtökin WomenTechIceland greina frá nýrri stjórn sinni í fréttatilkynningu en starfsemi þeirra snýst meðal annars um að hvetja til jafnréttis og inngildingar í íslenskum tækniiðnaði.

Frá stofnun árið 2017 hafa samtökin tengt saman breiðan hóp kvenna í tækni hér á landi og vilja með því stuðla að aukinni fjölbreytni og þátttöku í íslensku tæknisamfélagi, segir í tilkynningunni og svo:

„WomenTechIceland leggja mikið upp úr því að tengja Ísland við alþjóðlegt tæknisamfélag og er vettvangur fyrir viðburði, fréttir og umræður.“

Heiður að þjóna samtökunum

„WomenTechIceland hafa skapað sér mikilvægan sess tæknisamfélaginu á Íslandi. Við viljum berjast fyrir auknum tækifærum kvenna í tækni og það er mér heiður að fá að þjóna samtökunum og samfélaginu sem hefur skapast í kringum þau,“ er haft eftir Ólöfu Kristjánsdóttur, nýjum formanni stjórnar WomenTechIceland.

Nýja stjórn skipa:

Ólöf Kristjánsdóttir, markaðsstjóri hjá Taktikal

Paula Gould, stofnandi Float & gather

Valenttina Griffin, stofnandi og eigandi Griffin & Jonsson

Ósk Heiða Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptavina hjá Póstinum

Payal Shah, sjálfstætt starfandi viðmótshönnuður, nýsköpunarráðgjafi og frumkvöðull í samfélagsmálum

Randi Stebbins, stjórnandi efnismarkaðssetningar hjá AGR

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK