Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentustig. Þetta er í fyrsta sinn síðan í nóvember árið 2020 sem Seðlabankinn lækkar vextina.
Meginvextir bankans eru núna 9%.
Fram kemur í tilkynningu að verðbólga hafi hjaðnað undanfarið en hún mældist 5,4% í síðasta mánuði.
„Þótt ákveðnir einskiptisliðir vegi þungt hefur dregið úr umfangi og tíðni verðhækkana. Undirliggjandi verðbólga hefur jafnframt minnkað og verðbólguálag á skuldabréfamarkaði lækkað,“ segir í tilkynningunni.
„Áfram virðist hægja á efnahagsumsvifum í takt við aukið peningalegt taumhald. Þá eru vísbendingar um að dregið hafi úr spennu á vinnumarkaði og svartsýni heimila og fyrirtækja hefur aukist.“
Fram kemur að þrálát verðbólga, verðbólguvæntingar yfir markmiði og mikil innlend eftirspurn kalli þó á varkárni. Áfram þurfi því að viðhalda hæfilegu aðhaldsstigi til þess að koma verðbólgu í markmið innan ásættanlegs tíma.