Innherji er skoðanadálkur ViðskiptaMoggans.
Gengi bréfa flugfélagsins Play hefur lækkað um tæp 90% innan ársins miðað við gengi dagsins.
Stjórnendur félagsins kynntu í vikunni nýjar áherslur í rekstri félagsins og sögðu jafnframt að félagið muni skila meira tapi en áður var gert ráð fyrir.
Stjórnendur eru með kynningarfund á uppgjöri félagsins 24. október í næstu viku. Miðað við hreyfingar á bréfum félagsins er ljóst að stjórnendur þurfa að skýra stöðuna betur á félaginu. Markaðasaðilar virðast í öllu falli vera búnir að missa trúnna.